SOS Tölvuhjálp

SOS Tölvuhjálp

Neyðarþjónusta

Neyðarþjónusta

Við erum með opið allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

Þegar tölvan stöðvast á versta tíma skiptir máli að ná í einhvern strax. Við tökum við beiðnum allan sólarhringinn og komum í heimahús eða á vinnustaðinn.

Ekki bíða – hringdu í 777-0003.

Fáðu símtal til baka

Svona virkar það

Ferlið er einfalt og þú veist alltaf hvar þú stendur áður en nokkuð er gert:

Hafðu samband

Hringdu í 777-0003 eða sendu inn beiðni hér að ofan. Við svörum allan sólarhringinn.

Við metum vandann

Við förum yfir stöðuna með þér og áætlum hvað þarf að gera áður en verkið hefst.

Við komum á staðinn

Við komum í heimahús og skoðum öll verkefni til að meta nákvæmlega hvað þarf að gera.

Tækið ræsir ekki

Tækið ræsir ekki

Tölva sem ræsir ekki þarf ekki að þýða að gögnin séu töpuð. Í flestum tilvikum er hægt að komast að þeim þótt tækið sjálft fari ekki í gang.

Við byrjum á því að greina hvort um sé að ræða vélbúnað, stýrikerfi eða aflgjafa áður en nokkuð er ákveðið um framhaldið.

Netið dettur út

Netið dettur út

Óstöðugt netsamband getur átt sér margar orsakir: beinirinn sjálfur, staðsetning hans, þekja um húsið eða búnaður sem truflar.

Við mælum þekjuna á staðnum og finnum hvar sambandið rofnar í stað þess að giska.

Gögn hafa tapast

Gögn hafa tapast

Myndir, skjöl og tölvupóstur sem virðast horfin eru oft enn til staðar á disknum.

Því fyrr sem hætt er að nota tækið eftir gagnatap, því meiri líkur eru á að endurheimt takist.

Vantar þig aðstoð?

Viltu fá okkur í heimsókn til að leysa tæknivandamál þín?

Hafðu Samband